Thursday, September 13, 2007

úti í canada! (LOKSINS!)

hæ öll sömul ég veit að ég hef ekki bloggað lengi en viti þið akkuru? ég var nefninlega úti í canada! já það er gott að fara og heimsækja pabba aðeins en ég saknaði mömmu svo rosalega mikið.en það er nú allt í lagi því að við vorum bara í þrjár vikur og tvo daga. og svo fer ég líka bara einu sinni á ári til canada. og svo er skólinn líka birjaður. það er líka rosa fjör en það er eitt vandamál ég sakna alltaf annahvort pabba eða mömmu :s en það var eitt leiðinlegt sem gerðist úti í canada.sko ég fór í tívolí og við fórum í rússíbana sem hét dreka eldur (dragon fire) og ég kom grátandi úr honum því að fyrst þá fórum við ógeðslega hægt en hátt upp og fórum svo PÚFF!niður aftur og snérumst þá strax í þrjá eða fjóra hringi!en svo jafnaði ég mig nú aftur. og svo birjar fótboltinn aftur bráðum eftir einhverja hátíð! en nú verð ég að kveðja.bæ!bæ! p.s. ég held uppá afmælið mitt á laugardaginn og ég er búinn að bjóða 13 gestum í það :OD