Saturday, June 30, 2007

VÚHÚÚ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

halló vitiþið afhverju ég er svona glöð það er afþví að ég var að fá síma í gær og tegundin er nokia það er ógeðslega gaman að eiga síma í firsta skiptið ég fattaði það afþví að mamma fékk hjálp frá ernu því að hún hringdi í mig og mamma tók símann minn og sagði:hjerna þetta er til þín og ég svaraði en ég heirði bara ekkert sem hún sagði því að hún var að stríða mér.þegar þetta var búið þá stoppaði ég og skoðaði símann og svo knúsaði mömmu í klessu. en nú verð ég að kveðja því að það er bara morgunn og é get ekki pikkað meir.bæó!

Saturday, June 9, 2007

VÚHÚÚÚÚ!!!!

hæ öll sömul vitiði hvað ég var að keppa í dag og vitiði hvað. liðið mitt vann! Við fengum bikarinn og hann verður geymdur í hk húsinu og við fengum medalíur! þetta er firsta medalían mín og þetta var bónusmót og á medalíunni stendur: BÓNUSMÓT ÞRÓTTAR KÞ og aftan á stendur 2007. og svo fengum við miða og á firsta miðanumm stóð:FRÍTT Í LAUGARDALSLAUG gildir fyrir einn þátttakanda og fjölskildu hans gildir 9.til 16.júní 2007og á hinum miðanum stendur:FRÍTT Í FJÖLSKYLDU OG HÚSDÝRA GARÐINNf yrir einn þátttakanda. en nú verð ég að kveðja.bæó spæó! p.s. ein önnur tönn er dottin.